Mynd dagsins - Nóri og Tómas buðu upp á bleikt límonaði

Brynjúlfur Nóri Ólason og Tómas Orri Stefánsson, vinir og bekkjarfélagar úr Borgarhólsskóla, buðu gestum og gangandi upp á bleikt límonaði í haustblíðu

Brynjúlfur Nóri og Tómas Orri límonaðisölumenn.
Brynjúlfur Nóri og Tómas Orri límonaðisölumenn.

Brynjúlfur Nóri Ólason og Tómas Orri Stefánsson, vinir og bekkjarfélagar úr Borgarhólsskóla, buðu gestum og gangandi upp á bleikt límonaði í haustblíðu dagsins.

Viðtökur voru góðar en salan fór fram við Garðarsbraut, nánar tiltekið á gangstéttinni framan við Formannshúsið.

Þegar ljósmyndari 640.is kom þar að var rífandi gangur hjá þeim og vinirnir ánægðir hve vel gekk á kútinn.

Eins og sönnum kaupmönn-um sæmir voru Nóri og Tómas með tilboð sem hljóðaði þannig að ef viðskipta-vinurinn keypti tvö glös fékk hann það þriðja frítt.

Auk þess buðu þeir upp á fría mæru með hverju glasi og féll það í góðan jarðveg hjá kaupendum.

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Brynjúlfur Nóri tv. og Tómas Orri prýða mynd dagsins.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744