22. apr
Mynd dagsins - Hjólað í blíðunniMynd dagsins - - Lestrar 482
Mynd dagsins var tekin fyrir stundu og sýnir þær Björgu Björnsdóttur sjúkraþjálfara og Fríðu í Sjávarborg í vorblíðunni þennan morguninn.
Þær voru í hjólatúr, Björg hjólaði og Fríða sat í vagninum. "Þetta er líka sögustund" sagði Björg hlæjandi.
Fríða sem, heitir fullu nafni Hólmfríður Hilma Sigurðardóttir, átti 100 ára afmæli fyrir ekki svo löngu og hafði frá ýmsu að segja á ferð þeirra um bæinn á síðasta degi vetrar.
Fríða í Sjávarborg og Björg sjúkraþjálfari voru í hjólatúr þegar ljósmyndari 640.is hitti þær í morgun.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.