09. ágú
Magnús Matthíasson ráðinn skólastjóri á RaufarhöfnAlmennt - - Lestrar 718
Magnús Matthíasson hefur verið ráðinn í stöðu skólastjóra Grunnskóla Raufarhafnar.
Í tilkynningu segir að Magnús sé menntaður framhaldsskóla- og grunnskólakennari og hafi starfað sem slíkur að mestu síðan árið 1998.
Hann hefur einnig víðtæka reynslu af æskulýðsmálum, bæði í starfi sínu sem umsjónarmaður félagsmiðstöðvar hjá sveitarfélaginu Árborg sem og í störfum innan skákhreyfingarinnar og í handbolta.