Magnaður sigur Völsungs á Vestra

Völsungar komu til baka eftir tapið gegn Kára um síðustu helgi og sigruðu sterkt lið Vestra í 2. deildinni á Húsvíkurvelli í dag.

Magnaður sigur Völsungs á Vestra
Íþróttir - - Lestrar 474

Aðalsteinn Jóhann var valinn maður leiksins.
Aðalsteinn Jóhann var valinn maður leiksins.

Völsungar komu til baka eftir tapið gegn Kára um síðustu helgi og sigruðu sterkt lið Vestra í 2. deildinni á Húsavíkurvelli í dag.

Völsungur komst yfir snemma leiks þegar Ásgeir Kristjánsson skoraði en Zoran Plazonic náði að jafna fyrir gestina áður en flautað var til leikhlés.

Ásgeir Kristjánsson og Elvar Baldvinsson skoruðu síðan báðir í síðari hálfleik og innsigluðu 3-1 sigur Völsungs. 

Glæsilegur sigur hjá grænum en Vestra er spáð toppsæti deildarinnar en Völsungum því fjórða, en það er bara spá.

Völsungur TV valdi Aðalstein Jóhann Friðriksson hægri bakvörð Völsung mann leiksins.

Hér má lesa leiksskýrsluna

Staðan í deildinni

Næsti leikur Völsungs í deidlinni er 18. maí á Eskjuvelli þar sem mótherjarnir eru Fjarðarbyggð.

 Ásgeir Kristjánsson

Ásgeir í leik gegn Vestra í fyrra.

Elvar Baldvinsson

Elvar Baldvinsson.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744