15. júl
Mærudagarnir slegnir af í árAlmennt - - Lestrar 233
Á heimasíðu Norðurþings er vakin athygli á því að vegna þróunar mála er snúa að heimsfaraldri kórónuveirunnar mun sveitarfélagið ekki standa fyrir formlegum hátíðarhöldum vegna Mærudaga sumarið 2020.
Ekki verður boðið upp á formlega dagskrá í nafni hátíðarinnar, en íbúar allir engu að síður hvattir til að skreyta bæinn og gera sér glaðan dag með fjölskyldu og vinum hér á svæðinu helgina 25.-26. júlí.