Loftgæðimælingar á Bakka

Norðan og sunnan megin við verksmiðju PCC á Bakka eru tvær loftgæðastöðvar staðsettar þar sem símæling á loftgæðum fer fram.

Loftgæðimælingar á Bakka
Almennt - - Lestrar 481

Önnur tveggja loftgæðistöðvanna.
Önnur tveggja loftgæðistöðvanna.

Norðan og sunnan megin við verksmiðju PCC BakkaSilocon á Bakka eru tvær loftgæðastöðvar staðsettar þar sem símæling á loftgæðum fer fram.

Mælistöð suður er rétt við Húsavíkurbyggð suður af verksmiðjunni. Mælistöð norður er nyrst á skilgreindu iðnaðarsvæði Bakka, við sveitarfélagsmörk Húsavíkur og Tjörnes.

Staðsetning stöðvanna var valin með tilliti til ríkjandi vindátta á svæðinu af sérfræðingum án aðkomu PCC BakkiSilicon segir á heimasíðu fyrirtækisins.

Stöðvarnar voru liður af bakgrunnsmælingum fram að framleiðslubyrjun, jafnframt eru þær notaðar í vöktun til að uppfylla ytri mæliáætlun og fylgjast með loftgæðum eftir að framleiðsla hefst.

Núna hefur Umhverfisstofnun tengt niðurstöður sem koma frá þessum stöðvum á sína heimasíðu, loftgæði.is. Þarna er hægt að fylgjast með loftgæðamælingunum í kringum verksmiðjuna sem og öðrum loftgæðamælingum á Íslandi. (pcc.is)


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744