Local Food Festival 2019 er nú lokið.Fréttatilkynning - - Lestrar 369
Margmenni var í Hofi, Menningarhúsi Akureyringa í dag þar 38 fyrirtæki tóku á móti gestum og gangandi.
Viðburðir voru margir á sýningunni í ár og krýndir voru Local Food meistara í þremur flokkum.
Forréttarkeppni matreiðslu nema, aðalréttakeppni matreiðslumanna og eftirréttarakeppni bakara og matreiðslunema/-manna.
Forréttarkeppni matreiðslunema:
Forréttur sem verður að innihalda bleikju og blómkál í aðalatriði.
Koma má með allt hráefni unnið og því aðeins um lokaeldun og uppstillingu á réttinum að ræða.
Keppandi verður að vera skráður á námssamning í matreiðslu.
Keppandi verður að skila fullbúinni uppskrift og lýsingu réttarins. Eitt eintak til sýnis við keppnisborð með nafni og eitt nafnlaust eintak til dómara. Uppskrift verður eign Klúbbs matreiðslumeistara á norðurlandi.
Sigurvegari - Bjarni Þór Ævarsson hjá Strikinu
Aðalréttakeppni matreiðslumanna:
Aðalréttur sem verður að innhalda lamb á tvo vegu.
Koma má með allt hráefni unnið og því aðeins lokaeldun og uppstillingu á réttinum að ræða
Keppandi verður að vera með sveinsbréf í matreiðslu.
Keppandi verður að skila fullbúinni uppskrift og lýsingu réttarins. Eitt eintak til sýnis við keppnisborð með nafni og eitt nafnlaust eintak til dómara. Uppskrift verður eign Klúbbs matreiðslumeistara á norðurlandi.
Sigurvegari - Árni Þór Árnason hjá Strikinu
Eftirréttarakeppni bakara og matreiðslunema/-manna:
Eftirréttur sem verður að innhalda Ricotta ost og vanillu
Koma má með allt hráefni unnið og því aðeins lokaeldun og uppstillingu á réttinum að ræða
Keppandi verður að vera á námssamning/- með sveinsbréf í matreiðslu/- eða bakstri
Keppandi verður að skila fullbúinni uppskrift og lýsingu réttarins. Eitt eintak til sýnis við keppnisborð með nafni og eitt nafnlaust eintak til dómara. Uppskrift verður eign Klúbbs matreiðslumeistara á norðurlandi.
Sigurvegari - Jón Arnar Ómarsson hjá Strikinu.
Flottustu básarnir:
Veitt voru verðlaun fyrir fallegasta básinn og frumlegasta básinn. Einnig voru veitt verðlaun sem nefnd eru frumkvöðull ársins í mat og matarmenningu.
Fallegasti básinn: Matarkista Skagafjarðar
Frumlegasti básinn: Milli fjöru og fjalla
Frumkvöðull ársins: Norðlenska
Á sýningunni fór fram uppboð þar sem söfnuðust um 250.000 kr. til styrktar Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis.