07. des
Kristján Davíð, Indriði og Kristján Ingi héraðsmeistarar HSÞ í skák U-16 áraÍþróttir - - Lestrar 393
Héraðsmót HSÞ í skák fyrir börn á grunnskólaaldri fór fram á Laugum í dag og var þátttakan góð en 20 krakkar mættu til leiks.
Kristján Davíð Björnsson varð héraðsmeistari í flokki 13-15 ára annað árið í röð, en hann vann alla sína andstæðinga.
Indriði Ketilsson varð héraðsmeistari í flokki 9-12 ára en hann vann einnig alla sína andstæðinga.
Kristján Ingi Smárason varð héraðsmeistari í flokki 8 ára og yngri með 4 vinninga af 5 mögulegum.