22. ágú
Kiwanismót Völsungs er um helginaÍþróttir - - Lestrar 409
Hið árlega Kiwanismót Völsungs í knattspyrnu verður haldið um helgina, nánar tiltekið sunnudaginn 24. september.
Mótið er árlegur viðburður hjá Völsungi og er ætlað krökkum í sjötta, sjöunda og áttunda flokk af báðum kynjum. Mótið hefur markað vertíðarlok hjá yngri flokkum Völsungs í knattspyrnu og hefur þótt hin mesta skemmtun.
Mótið hefst klukkan 11:00 og verður öllum leikjum lokið klukkan 16:00.
Um að gera að kíkja upp á völl og horfa á upprennandi fótboltastjörnur leika listir sýnar.