Kaelon P. Fox og Harpa Ásgeirsdóttir valin bestu leikmenn sumarsins hjá Völsungum

Kaelon P. Fox og Harpa Ásgeirsdóttir voru valin bestu leikmenn meistaraflokka Völsungs á lokahófi sem fram fór sl. laugardagskvöld.

Verđlaunahafar á lokahófi Völsungs.
Verđlaunahafar á lokahófi Völsungs.

Kaelon P. Fox og Harpa Ásgeirsdóttir voru valin bestu leikmenn meistaraflokka Völsungs á lokahófi sem fram fór sl. laugardagskvöld.

Hófiđ, sem ţótti vel heppnađ, var haldiđ á Fosshótel ţar sem Norđlenska bauđ uppá listagott lambakjöt. 

Dagskrá var međ hefđbundnu sniđi og náđi hápunkti ţegar leikmenn og ţjálfarar kjósa bestu og efnilegustu leikmenn sumarsins.

Uppskera sumarsins var góđ. Stelpurnar urđu deildameistarar í sinni deild og spila í Inkasso deildinni ađ ári. Strákarnir enduđu sumariđ vel međ góđum sigri á heimavelli. Skilađi ţađ liđinu í 6. sćti sinnar deildar.

Bestu leikmenn meistaraflokka voru kosin Harpa Ásgeirsdóttir og Kaelon P. Fox. Harpa er ţaulreyndur leikmađur og var fyrirliđi meistaraflokks kvenna sem hampađi deildarmeistaratitli í 2. deild kvenna. Fox var ađ spila sitt fyrsta tímabil međ Völsungi og stimplađi sig rćkilega inn í hjörtu Völsunga međ góđri frammistöđu.

Efnilegustu leikmenn meistaraflokka voru kosin Árdís Rún Ţráinsdóttir og Arnar Pálmi Kristjánsson. Árdís spilađi virkilega vel í stöđu hćgri bakvarđar í sumar og stimplađi sig inn í liđ Völsungs međ stćl. Arnar Pálmi kom inn í vinstri bakvörđ hjá strákunum eftir ađ Sigvaldi meiddist. Ţá stöđu leisti hann fanta vel og endađi sumariđ međ stćl ţegar hann skorađi sitt fyrsta mark fyrir meistaraflokk beint úr hornspyrnu.

Í 2. flokki karla var Arnar Pálmi valinn besti leikmađurinn og Rafnar Máni Gunnarsson sá efnilegasti. Rafnar Máni hefur veriđ ađ spila vel í sumar sem varđ til ţess ađ hann stimplađi sig inn í meistaraflokk og tók ţar ţátt í 7 leikjum.

Ţar ađ auki voru valdir Völsungar ársins í báum liđum. Völsungur ársins er valinn sá leikmađur sem er alltaf tilbúinn ađ fórna sér fyrir liđiđ hvort sem ţađ er innan sem utan vallar. Er góđur félags- og liđsmađur og alltaf tilbúinn ađ hvetja liđiđ sitt áfram. Ađ ţessu sinni voru Arnhildur Ingvarsdóttir og Ófeigur Óskar Stefánsson sem hlutu verđlaunin Völsungur ársins.

Verđlaunahafar á lokahófi Völsungs 2019

Verđlaunahafra á lokahófi Völsungs 2019.

Á heimasíđu Völsungs má sjá fleiri myndir af verđlaunahöfum.


  • Herna

640.is | Ábyrgđarmađur Hafţór Hreiđarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744