23. mar
Kaðlín eignast nýtt heimiliAlmennt - - Lestrar 537
Handverkshópurinn Kaðlín mun eignast nýtt heimili í vor en hann hefur tekið á leigu hluta af gamla frystiklefarýminu í Hvalasafninu undir starfsemi sína.
Eins og kom fram á 640.is á dögunum keypti Steinsteypir ehf. frystiklefarýmið og stendur til að gera upp þessi rými á vandaðan hátt.
Hluti þeirra verður nýttur í rekstur á salernisaðstöðu fyrir ferðamenn og mun Kaðlín sinna þjónustu við þau samkvæmt samstarfssamningi við Steinsteypi.
Mikil gleði með samstarfssamninginn, Friðrik Sigurðsson hjá Steinsteypi ásamt handverkskonunum Ólöfu Pálsdóttur, Bergljótu Jónsdóttur, Svanhvíti Jóhannesdóttur og Elínu Jónasdóttur.