Jómfrúarferð TF-ORI til Húsavíkur í dagAlmennt - - Lestrar 704
Ánægjulegt skref var stigið í samgöngumálum til Húsavíkur í dag þegar ný 32 sæta skrúfuþota Flugfélagsins Ernis fór í sína jómfrúarferð undir stjórn Þráins Hafsteinssonar flugstjóra.
Vélin lenti í Aðaldal síðdegis og var vel tekið á móti henni sem og farþegum og áhöfn. Norðurþing bauð viðstöddum upp á tertu sem Örlygur Hnefill Örlygsson forseti bæjarstjórnar sá um að skera.
Hörður Guðmundsson forstjóri Flugfélagsins Ernis tók til máls sem og fleiri, t.am. Kristján Þór Magnússon bæjarstjóri Norðurþings og Aðalsteinn Árni Baldursson formaður Framsýnar.
"Þetta ein hraðfleygasta skrúfuvélin á markaðnum í dag. Hún er því mjög fljót í förum, þykir farþegavæn og er hljóðlát. Það má því í raun segja að þetta sé Rollsinn í þessum flokki flugvéla,“ segir Hörður um þessa nýju viðbót við flota félagsins en hún var keypt sl. vor.
Vélin er af gerðinni Dornier 328-100 og ber einkennisstafina TF-ORI. Vélin var framleidd árið 1998 en kom hún hingað til lands um mánaðamótin maí-júní og hefur frá þeim tíma verið unnið að því að koma vélinni inn í kerfi félagsins og þjálfa bæði flugmenn og flugvirkja.
TF-ORI kemur inn á flughlaðið á Húsavíkurflugvelli.
Þetta var í fyrsta skipti í sögu Ernis sem flugfreyja var um borð og það reyndar tvær í þessu fyrsta flugi. Unnur Gunnarsdóttir og Ásbjörg Morthens heita þær og á myndinni er Unnur nýbúin að opna hurð vélarinnar.
TF ORI á flughlaðinu.
Eigendur Flugfélagsins Ernis, hjónin Hörður Guðmundsson og Jónína Guðmundsdóttir.
Forseti bæjarstjórnar Norðurþings sá um skera tertuna sem sveitarfélagið bauð upp á í tilefni komu TF ORI.
TF ORI tilbúin til brottfarar frá Húsavíkurflugvelli í Aðaldalshrauni en þess má geta að 17. desember nk. verða sextíu og eitt ár liðin síðan áætlunarflug til Húsavíkur hófst.