18. sep
Jökull Gunnarsson ráðinn forstjóri kísilmálmverksmiðju PCC á BakkaFréttatilkynning - - Lestrar 747
Jökull Gunnarsson framleiðslu-stjóri PCC BakkiSilicon hf. hefur verið ráðinn forstjóri félagsins.
Hafsteinn Viktorsson sem lætur nú af störfum sem forstjóri mun sinna verkefnum fyrir félagið, þar á meðal hvað varðar mögulega stækkun verksmiðjunnar.
Frá júní 2016 hefur Hafsteinn unnið að byggingu og gangsetningu kísilverksmiðjunnar á Bakka við Húsavík.
Í tilkynningu þakka hluthafar PCC BakkiSilicon hf. honum kærlega fyrir það lykilhlutverk sem hann hefur gegnt í því verkefni og hlakka til að vinna með honum að nýjum viðfangsefnum.