Jökull Gunnarsson ráðinn forstjóri kísilmálmverksmiðju PCC á Bakka

Jökull Gunnarsson framleiðslustjóri PCC BakkiSilicon hf. hefur verið ráðinn forstjóri félagsins.

Jökull Gunnarsson.
Jökull Gunnarsson.

Jökull Gunnarsson framleiðslu-stjóri PCC BakkiSilicon hf. hefur verið ráðinn forstjóri félagsins.

Hafsteinn Viktorsson sem lætur nú af störfum sem forstjóri mun sinna verkefnum fyrir félagið, þar á meðal hvað varðar mögulega stækkun verksmiðjunnar.

Frá júní 2016 hefur Hafsteinn unnið að byggingu og gangsetningu kísilverksmiðjunnar á Bakka við Húsavík.

Í tilkynningu þakka hluthafar PCC BakkiSilicon hf. honum kærlega fyrir það lykilhlutverk sem hann hefur gegnt í því verkefni og hlakka til að vinna með honum að nýjum viðfangsefnum.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744