Jákvæð rekstrarafkoma Langanesbyggðar

Rekstrarafkoma A-hluta sveitarsjóðs Langanesbyggðar er jákvæð um 27,6 m.kr. árið 2016.

Jákvæð rekstrarafkoma Langanesbyggðar
Almennt - - Lestrar 211

Frá Þórshöfn.
Frá Þórshöfn.

Rekstrarafkoma A-hluta sveitarsjóðs Langanesbyggðar er jákvæð um 27,6 m.kr. árið 2016.

Það er 29,1 m.kr. betri afkoma en 2015, sem er einnig töluvert betri en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir. 

Þetta kemur fram á heimasíðu sveitarfélagsins. 

Tekjur aðalsjóðs eru 2,9% hærri en rekstragjöld 0,6% lægri samanborðið við 2015. Afkoma samstæðu, A og B-hluta, er jákvæð um rúmar 35 m.kr. sem er 11,9 m.kr. betri afkoma en áætlun gerði ráð fyrir og 26,7 millj. betri afkoma en var 2015. 

Á fundi sveitarstjórnar 23. febrúar sl., benti sveitarstjóri á að lækkun rekstrakostnaðar aðalsjóðs væri áhugaverð með hliðsjón að launakostnaður aðalsjóðs hefði hækkað um 3,2% milli ára. 

Elías Pétursson, sveitarstjóri sagði að þessi góði árangur hefði ekki náðst nema fyrir samstillt átak og góða vinnu allra starfsmanna sveitarfélagsins sem hver og einn hefði lagt mikið af mörkum til þess að þessi árangur næðist.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744