Jafntefli í fyrsta leik

Völsungur tók á móti Aftureldingu á Húsavíkurvelli í gær en þá hófst keppni í 2. deild karla.

Jafntefli í fyrsta leik
Íþróttir - - Lestrar 571

Ásgeir Kristjánsson skorar hér mark Völsungs.
Ásgeir Kristjánsson skorar hér mark Völsungs.

Völsungur tók á móti Aftureldingu á Húsavíkurvelli í gær en þá hófst keppni í 2. deild karla.

Völsungur náði forystunni á 15. mínútu leiksins þegar Ásgeir Kristjánsson skorðaði af stuttu færi. 

Gestirnir úr Mosfellsbænum náðu að jafna á 34. mínútu leiksins og þar var að verki Elvar Ingi Vigfússon.

Staðan var 1-1 að loknum fyrri hálfleik og ekkert mark kom í þeim síðari þannig að niðurstaðan var 1-1 jafntefli.

Völsungar léku einum fleiri síðasta hálftímann eftir að Sigurður Kristján Friðriksson fékk að líta rauða spjaldið.

Völsungur - Afturelding

Ásgeir Kristjánsson skýtur að marki og boltinn lá í netinu.

Völsungur - Afturelding

Markaskorari gestanna sækir að markverði Völsungs.

Völsungur - Afturelding

Völsungur - Afturelding

Victor Svensson og Elvar Ingi Vigfússon berjast um boltann.

Völsungur - Afturelding

Guðmundur Óli með skot að marki en í stöngina fór boltinn.

Völsungur - Afturelding

Barátta í teig gestanna undir lokin.

Með því að smella á myndirnar er hægt að fletta þeim og skoða í stærri upplausn.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744