Jafnteflisleikir hjá stelpunum fyrir sunnan

Völsungsstelpurnar léku tvo leiki sunnan heiða í 2. deild kvenna um helgina.

Jafnteflisleikir hjá stelpunum fyrir sunnan
Íþróttir - - Lestrar 484

Áslaug Munda skoraði gegn Fjölni.
Áslaug Munda skoraði gegn Fjölni.

Völsungsstelpurnar léku tvo leiki sunnan heiða í 2. deild kvenna um helgina.

Á föstudagskveldinu mættu þær Fjölni í Grafarvogi og lauk þeim leik með jafntefli 1-1.

Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir kom Völsungum yfir eftir tæplega hálftíma leik en heimastúlkur jöfnuðu metin á 72. mínútu leiksins.

Á sunnudeginum léku stelpurnar gegn Hvíta Riddaranum á Tungubakkavelli í Mosfellsbæ og þar var jafntefli einnig niðurstaðan.

Völsungar komust í 2-0 eftir tólf mínútna leik en Kayla Grimsley kom þeim yfir með marki úr vítaspyrnu á sjöundu mínútu og heimastúlkur settu boltann í eigið mark á 12. mínútu.

Þannig var staðan þar til Sóley Rut Þrastardóttir minnkaði muninn á 90. mínútu og í uppbótartíma jafnaði hún leikinn fyrir Hvíta Riddarann sem þar með fékk sitt fyrsta stig í deildinni.

Völsungar eru í öðru sæti deildarinnar en hér má sjá stöðuna.

Kayla Grimsley

Kayla Grimsley skoraði mark gegn Hvíta riddaranum.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744