Íslensku Sumarleikarnir á Akureyri um verslunarmannahelginaFréttatilkynning - - Lestrar 525
Íslensku sumarleikarnir á Akureyri fara fram um verslunarmannahelgina.
Sumarleikarnir á Akureyri hafa gengið vel hingað til og endapunkturinn sem er jafnframt hápunktur hátíðarinnar nálgast.
Föstudagsfílingur sem er í boði N4 kemur helginni af stað með tónleikum sem eru jafnframt í beinni útsendingu frá 20:00-22:00. Þar koma fram Dúndurfréttir, Aron Óskar og Gréta Salóme svo eitthvað sé nefnt.
Sunnudagur er loka sprettur Sumarleikana. Þríþraut Íslensku Sumarleikana verður haldin, Kirkjutröppu Townhill á fjallahjólum verður á sínum stað þar sem okkar bestu fjallahjóla einstaklingar etja kappi í einu skemmtilegasta móti helgarinnar. Sparitónleikar verða haldnir neðan við Samkomuhúsið og þar sláum við botninn í hátíðina þar sem fyrstu Sumarleika meistararnir verða krýndir og glæsileg tónlistaratriði eins og Glowie, Skítamórall, Úlfur Úlfur, Kött Grá Pje og Stórsveit Hvanndalsbræðra stígur á stokk, jafnvel bætist við ein systir. Kvöldinu lýkur svo með flugeldasýningu og smábátar bæjarins lita Pollinn rauðan.