Íslandsbanki færir sig um set

Útibú Íslandsbanka flytur í nýtt húsnæði á Húsavík næsta vor. Samið hefur verið við Gb5 ehf. um leigu á Garðarsbraut 5 fyrir útibúið sem verður á 1.hæð í

Íslandsbanki færir sig um set
Fréttatilkynning - - Lestrar 491

Garðarsbraut 5.
Garðarsbraut 5.

Útibú Íslandsbanka flytur í nýtt húsnæði á Húsavík næsta vor.

Samið hefur verið við Gb5 ehf. um leigu á Garðarsbraut 5 fyrir útibúið sem verður á 1.hæð í hluta sem nefnist Garðar.

Í fréttatilkynningu kemur fram að stefnt sé að flutningi um miðjan apríl 2023 að afstöðnum lagfæringum sem hefjast í október næstkomandi.

„Við hlökkum til flutningsins, enda kemur nýtt húsnæði til með að styðja við og efla þjónustu okkar á svæðinu. Öll hönnun og virkni nýja útibúsins tekur mið af sveigjanleika í skipulagi, nýrri tækni, öflugri ráðgjöf og persónulegri þjónustuupplifun,“ segir Margrét Hólm Valsdóttir, útibússtjóri Íslandsbanka á Húsavík.

Núverandi húsnæði Íslandsbanka að Stóragarði 1, þar sem bankinn hefur verið undanfarna áratugi, verður sett á sölu.

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Garðarsbraut 5. 

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Garðarsbraut 5 lengst til vinstri og Stórigarður 1 lengst til hægri.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744