Húsnæðið að Langanesvegi 2 í eigu sveitarfélagsins

Á síðasta fundi sveitarstjórnar Langanesbyggðar, 15. febrúar sl., var samþykkt að heimila sveitarstjóra að undirrita kaupsamning á húsnæðinu að

Langanesvegur 2. Lj. langanesbyggd.is
Langanesvegur 2. Lj. langanesbyggd.is

Á síðasta fundi sveitarstjórnar Langanesbyggðar, 15. febrúar sl., var samþykkt að heimila sveitarstjóra að undirrita kaupsamning á húsnæðinu að Langanesvegi 2, stundum nefnd Jónsabúð.

Á heimasíðu Langanesbyggðar segir að húsnæðið hafi staðið autt í mörg ár og verið til vansa í mörg ár.

Samþykki sveitarstjórnar er gert með fyrirvara um að engir alvarlegir gallar komi fram við úttekt á húsinu.

"Á næstu vikum verður mótuð stefna um hvað gert verður við húsið, en núna skapast tækifæri á að koma því í gagnið samfélaginu til hagsbóta," sagði Þorsteinn Ægir Egilsson, oddviti Langanesbyggðar aðspurður um kaupin. (langanesbyggd.is)

 

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744