Hrútar frestast vegna veđurblíđuFréttatilkynning - - Lestrar 526
Vetrartökum á kvikmyndinni Hrútum í leikstjórn Gríms Hákonarsonar hefur veriđ frestađ fram í janúar vegna snjóleysis í Bárđardal.
Í kvikmyndinni fara ţeir Sigurđur Sigurjónsson og Theodór Júlíusson međ hlutverk tveggja brćđra sem stunda búskap á samliggjandi jörđum en hafa ekki talast viđ í fjörtíu ár.
Framvinda sögunnar krefst ţess ađ í Bárđardalnum sé alvöru vetur og snjór yfir öllu međan á tökum stendur líkt og algengt er á ţessum árstíma. Vetrartökur hófust ţann 10. nóvember í frosthörkum viđ alhvíta jörđ. Nú blasa hins vegar viđ grćn tún og fuglasöngur. Samkvćmt veđurspám er milt veđur í kortunum fyrir norđan og lítil von á snjónum sem nauđsynlegur er svo tökur geti haldiđ áfram.
Í fréttatilkynningu segir ađ ţessi skortur á vetrarveđri valdi framleiđslunni auđvitađ töluverđu raski. Tökur hafa hins vegar gengiđ ađ óskum hingađ til og telja ađstandendur myndarinnar ólíklegt ađ tafirnar muni hafa áhrif á útgáfu myndarinnar, en ćtlunin er ađ frumsýna hana nćsta haust.