18. feb
Hollvinasamtök Húsavíkurkirkju verða stofnuð innan skammsAlmennt - - Lestrar 154
Á fundi sóknarnefndar Húsavíkur-sóknar í gær var ákveðið að stofna Hollvinasamtök Húsavíkurkirkju.
Boðað verður til stofnfundar fyrstu vikuna í mars en nú þegar hefur verið stofnaður reikningur fyrir verðandi Hollvini sem vilja leggja málinu lið.
Bankaupplýsingar: 0133 15 000602. Kt. 640169-5919
"Við erum afar þakklát fyrir þann velvilja og jákvæðni sem kirkjan hefur fengið að undanförnu og erum bjartsýn á verkefnið" segir á á heimasíðu Húsavíkurkirkju.