Hákon Hrafn sigraði 10 km. hlaupið í Gamlárshlaupi Völsungs

Gamlárshlaup Völsungs var haldið í morgun, einum degi á undan áætlun vegna slæmrar veðurspár.

Hákon Hrafn Sigurðsson á hlaupum í morgun.
Hákon Hrafn Sigurðsson á hlaupum í morgun.

Gamlárshlaup Völsungs var haldið í morgun, einum degi á undan áætlun vegna slæmrar veðurspár. 

Að vanda sá Hlaupahópurinn Skokki um framkvæmd hlaupsins en þetta er tíunda árið í röð sem Gamlárshlaup er haldið á Húsavík.

Veður og almennar aðstæður voru fullkomnar, hægviðri, hiti við frostmark og auð braut að mestu.

Samtals voru 39 manns sem þreyttu vegalengdirnar þrjár en í boði voru 3,5 km skemmtiskokk, 5 km hlaup og 10 km hlaup.

Í 10 km hlaupi varð Holtgerðingurinn Hákon Hrafn Sigurðsson að vanda langfyrstur. Annar varð Heiðar Halldórsson og Anna Halldóra Ágústsdóttir varð þriðja, en hún var eina konan sem hljóp 10 km.

Í 5 km varð Jökull Úlfarsson fyrstur af körlunum, Jón Friðrik Einarsson annar og Sigurgeir Stefánsson þriðji. Hjá konunum varð Hulda Ósk Jónsdóttir fyrst, Elísabet Ingvarsdóttir önnur og Elva Mjöll Jónsdóttir þriðja.
Hlaupahópurinn

Skokki vill þakka MjólkursamsalanGeosea og Sundlaug Húsavíkur fyrir veittan stuðning en einnig fá sjálfboðaliðar í skráningu og tímatöku kærar þakkir fyrir sitt framlag.

Hér koma nokkrar myndir af keppendum og með því að smella á þær er hægt að fletta þeim og skoða í stærri upplausn.

Hákon Hrafn Sigurðsson

Hákon Hrafn Sigurðsson.

Heiðar Hrafn Halldórsson

Heiðar Hrafn Halldórsson.

Anna Halldóra Ágústsdóttir.

Anna Halldóra Ágústsdóttir.

Jökull Úlfarsson

Jökull Úlfarsson.

Jón Friðrik Einarsson

Jón Friðrik Einarsson.

Sigurgeir Stefánsson

Sigurgeir Stefánsson.

Hulda Ósk Jónsdóttir

Hulda Ósk Jónsdóttir.

Starfsmenn

Starfsmenn við hlaupið.

Heildarúrslit:

10 km hlaup
1. sæti - Hákon Hrafn Sigurðsson 37:05
2. sæti - Heiðar Hrafn Halldórsson  42:16
3. sæti - Anna Halldóra Ágústdóttir 44:27
4. sæti - Tómas Pétursson 45:43
5. sæti - Guðjón Ásmundsson 48:27
6. sæti - Guðmundur Friðbjarnarson 53:06
7-8. sæti - Jón Gunnar Stefánsson 58:24
7-8. sæti - Hilmar Valur Gunnarsson 58:24

5. km hlaup
1. sæti - Jökull Úlfarsson 21:01
2. sæti - Hulda Ósk Jónsdóttir 21:42
3. sæti - Jón Friðrik Einarsson 21:54
4. sæti - Sigurgeir Stefánsson 22:44
5. sæti - Hjaldi Jónsson 23:48
6. sæti - Elísabet Ingvarsdóttir 24:26
7. sæti - Hólmgeir Rúnar Hreinsson 24:40
8. sæti - Andri Már Sigursveinsson 25:05
9. sæti - Þórir Örn Gunnarsson 25:06
10. sæti - Elva Mjöll Jónsdóttir 26:22
11-12. sæti - Dagbjört Ingvarsdóttir 26:25
11-12. sæti - Bryndís Hulda Ómarsdóttir 26:25
13. sæti - Sigmar Hjartarson 26:49
14. sæti - Unnsteinn Ingi Júlíusson 27:14
15. sæti - Sigursveinn Hreinsson 27:32
16. sæti - Stefán Skúlason 29:12
17. sæti - Karen Bjarnadóttir 29:48
18-19. sæti - Rakel Guðjónsdóttir 31:04
18-19. sæti - Ívar Orri Kristjánsson 31:04
20. sæti - Sóley Sigurðardóttir 32:30
21. sæti - Hanna Skúladóttir 33:00
22. sæti - Bjarni Páll Vilhjálmsson 35:30

3 km skemmtiskokk án tímatöku tóku þátt
Erna Björnsdóttir
Hrafnhildur Barkardóttir
Brynja Kristín
Rakel Hólmgeirsdóttir
Guðmundur H. Ágústsson
Anna Lísa Guðmundsdóttir
Júdit Hjálmarsdóttir


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744