Hákarlar skornir í vorblíðunniAlmennt - - Lestrar 385
Þeir voru verklegir félagarnir Óðinn Sigurðsson og Helgi Héðinsson þar sem þeir stóðu í hákarlaskurði ásamt Héðni Helgasyni í vorblíðunni í morgun.
Óðinn og Helgi eru með hákarlalínur í flóanum og hefur veiðin verið dræm í vetur. En í gær hljóp á snærið, eða réttara sagt línuna, hjá þeim því fjórir hákarlar fengust á sex króka línu en til veiðanna nota þeir vélbátinn Fram ÞH.
Og í morgun var hafist handa við að skera skepnurnar í beitur og voru þessar myndir teknar við það tækifæri.
Með því að smella á myndirnar er hægt að fletta þeim og skoða í stærri upplausn.
Alls var aflinn fjórir hákarlar sem þeir fengu á línuna í Skjálfandaflóa í gær og hér er verið að hífa einn á skurðarborðið.
Óðinn mundar hér sveðjuna á einn hákarlanna.
Helgi lætur ekki sitt eftir liggja kominn hátt á níræðisaldurinn.
Heimir Bessa réttir Héðni Helga hjálparhönd við að koma lifrinni í lifrarkarið.
Hákarlarnir vöktu athygli innlendra sem erlendra vegfarenda við höfninni og hér virðir Jón Helgi Brynjúlfsson eina skeppnuna fyrir sér íbygginn á svip.
Feðgar að störfum. Helgi Héðinsson og Héðinn sonur hans.
Hákarlaskurður í vorblíðunni.
Helgi Héðinsson sker lifrina í hæfilega bita.
Lifrin fer í karið en hún er m.a. nýtt sem fóðurauki fyrir sauðfé.
Hákarlana verka þeir félagar af sinni alkunnu snilld og þykir hann lostæti.