27. feb
Guðjón Vésteinsson ráðinn skipulagsfulltrúi SkútustaðahreppsAlmennt - - Lestrar 427
Tvær umsóknir bárust um 100% starf skipulags- og byggingafulltrúa Skútustaðahrepps.
Sveitastjórn samþykkti að ráða Guðjón Vésteinsson í starf skipulagsfulltrúa Skútustaðahrepps og að áframhaldandi samstarf verði við Þingeyjarsveit um skipulags- og byggingamál sveitarfélaganna.
Guðjón er verkfræðingur að mennt, Mývetningur í húð og hár. Hann tekur til starfa með vorinu.(skutustaahreppur.is)