Grunnskólinn á Þórshöfn flaggar Grænfánanum í fyrsta skiptiAlmennt - - Lestrar 114
Grunnskólinn á Þórshöfn náði þeim árangri að flagga Græn-fánanum í fyrsta skipti þann 29.maí.
Á heimasíðu Langanesbyggðar segir að skólinn hafi verið á grænni grein í nokkur ár og núna í vetur hefur verið starfandi umhverfisnefnd og unnið markvisst eftir skrefunum sjö í átt að vottun grænfánans.
Allir nemendur og starfsmenn skólans hafa komið að þessari vinnu og í vor var kosið lýðræðislega um einkunnarorð skólans. "Rusli í fötu, en ekki á götu" bar sigur úr býtum og er yfirskrift umhverfissáttmála sem allir hafa skrifað undir.
Umhverfisnefnd leikskólans Barnabóls afhenti umhverfisnefnd skólans fánann við hátíðlega athöfn og svo fóru allir nemendur, starfsmenn og aðrir gestir í leiki á sparkvellinum í góða veðrinu.