23. maí
Grátlegt tap hjá stelpunumAlmennt - - Lestrar 257
Völsungsstelpurnar kepptu við Tindastól í gærkvöldi á Sauðárkróki. Leikurinn endaði með 3-1 tapi.
Völssungsstúlkur byrjuðu af krafti og Hulda Ösp Ágústsdóttir kom okkar konum yfir á 21. mínútu leiksins. Tindastólskonur svöruðu strax mínútu seinna með marki og Völsungar áttu ekket svar við því og endaði leikurinn með sigri heimakvenna, þrjú mörk gegn einu.
Leikurinn í gærkvöldi var í Bikarkeppni kvenna. Tindastólskonur eru sem stendur í neðsta sæti 1. deildar en Völsungur í þriðja sæti þeirrar annarrar. Næsti leikur liðsins í deildinni er þann 5. júní gegn Fjarðabyggð/Leikni/Hetti þar eystra.