Gestafjöldi Hvalasafnsins í júlí fram úr væntingumAlmennt - - Lestrar 231
Gestir Hvalasafnsins á Húsavík í júlí 2019 voru tæpir 10 þúsund talsins.
Í tilkynningu segir að það sé fjölgun upp á rúm 11% frá árinu 2018 og ívið fleiri en heimsóttu safnið í júlí 2017.
Þjóðverjar og Bandaríkjamenn eru áfram fjölmennir sem hlutfall af heildargestafjölda en þá hefur einnig verið góð aðsókn frá mörgum Mið-Evrópuríkjum, ekki síst Frakklandi.
Þessi fjölgun gesta á háannatímanum verður að teljast afar ánægjuleg og jafnvel óvænt tíðindi fyrir Hvalasafnið. Í kjölfar tíðinda um fall WOW Air síðastliðið vor þótti líklegt að mikil fækkun yrði á komum ferðamanna til landsins og myndi það koma illilega niður á landsbyggðinni.
Það er því afar gleðilegt að upplifa vísi af því að ferðamönnum fækki ekki, enda þótt ekki sé hægt að heimfæra gestafjölda Hvalasafnsins yfir á heildarfjölda ferðamanna sem heimsækja Norðurland segir í tilkynningunni.