26. maí
Gestabókarganga að NykurtjörnAlmennt - - Lestrar 294
Í gærkveldi fór ellefu manna hressilegur hópur í gestabókar-göngu upp að Nykurtjörn í austurhlíð Geitafells í Þingeyjarsveit.
„Áttavilltar – gönguhópur kvenna“ leiddi gönguna, en í för slógust m.a. boðberar HSÞ fyrir Hreyfiviku UMFÍ og komu fyrir staurnum með gestabókarkassa sem tilheyrir verkefni UMFÍ „Fjölskyldan á fjallið“.
Á heimasíðu HSÞ segir að enn sé frekar blautt í jörð og var erfitt að fóta sig á tilheyrandi vegslóða, því hér norðan heiða hefur jú verið frekar kalt vor. Þrestirnir láta þó ekkert stoppa sig og eru farnir að verpa – fjögur egg í hreyðri er nokkuð sjaldgæft sagði einn fróður í hópnum. Það hlýtur að boða gott sumar!
Að sjálfsögðu var tekin hópmynd þar sem sést í ísilagða tjörnina og skelltu bleiku dömurnar sér í smá Hreyfiviku-grín!
Til gamans má geta þess að nykur þýðir tröll – en það gerði ekkert vart við sig rétt á meðan við stoppuðum þarna, enda kannski enn í vetrardvala. (hsth.is)