22. okt
Gasmengun á Norðurlandi og við HúsavíkAlmennt - - Lestrar 307
Aukin gasmengun er nú við Húsavík. Styrkur brennisteins-tvíildis þar mældist í dag yfir 2.000 míkrógrömm á rúmmetra.
Talsverð mengun er í Mývatns-sveit og í Kelduhverfi. Á báðum stöðum er gasmengun nú um 700 míkrógrömm á rúmmetra.
Mengun yfir 2.000 míkrógrömmum telst óholl og þá er fólki ráðlagt að loka gluggum, hækka í ofnum og halda sig innan dyra. (ruv.is)