01. mar
Gamla myndin - Halldór Blöndal og Kári í LaufásiGamla myndin - - Lestrar 354
Gamla myndin að þessu sinni var tekin í Kelduhverfi sumarið 2005.
Þetta var á sunnudeginum 24. júlí og veðrið lék við Keldhverfunga og gesti þeirra sem samankomin voru í Skúlagarði þar sem haldið var upp á aldarminningu Árna Björnssonar, tónskálds frá Lóni og eins af frumkvöðlum í íslensku tónlistarlífi.
Meðal gesta voru Halldór Blöndal fyrrverandi alþingismaður og ráðherra og Kári Þórarinsson í Laufási í Kelduhverfi og myndin sýnir þá á spjalli undir vegg félagsheimilsins í Skúlagarði. Kári lést þann 3. nóvember sama ár.
Með því að smella á myndin er hægt að skoða hana í stærri upplausn.