Gamla myndin - Halldór Blöndal og Kári í Laufási

Gamla myndin að þessu sinni var tekin í Kelduhverfi sumarið 2005.

Gamla myndin - Halldór Blöndal og Kári í Laufási
Gamla myndin - - Lestrar 354

Halldór Blöndal og Kári Þórarinsson.
Halldór Blöndal og Kári Þórarinsson.

Gamla myndin að þessu sinni var tekin í Kelduhverfi sumarið 2005.

Þetta var á sunnudeginum 24. júlí og veðrið lék við Keldhverfunga og gesti þeirra sem samankomin voru í Skúlagarði þar sem haldið var upp á aldarminningu Árna Björnssonar, tónskálds frá Lóni og eins af frumkvöðlum í íslensku tónlistarlífi.

Meðal gesta voru Halldór Blöndal fyrrverandi alþingismaður og ráðherra og Kári Þórarinsson í Laufási í Kelduhverfi og myndin sýnir þá á spjalli undir vegg félagsheimilsins í Skúlagarði. Kári lést þann 3. nóvember sama ár.

Halldór Blöndal og Kári Þórarinsson

Með því að smella á myndin er hægt að skoða hana í stærri upplausn.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744