Gamla myndin - Hafliði tekur viðtal við Atla Eðvaldsson

Gamla myndin að þessu sinni er frá árinu 1992, nánar tiltekið að kveldi 7. júlí.

Hafliði tekur viðtal við Atla Eðvaldsson.
Hafliði tekur viðtal við Atla Eðvaldsson.

Gamla myndin að þessu sinni er frá árinu 1992, nánar tiltekið að kveldi 7. júlí.

Það kvöld atti Völsungur kappi við KR í Mjólkurbikarnum og samkvæmt frétt í Degi sluppu KR-ingar fyrir horn á Húsavík.

Á myndinni er Hafliði Jósteinsson að taka viðtal fyrir Dag við Atla Eðvaldsson leikmann og aðstoðarþjálfara KR og hér fyrir neðan er frétt Dags af leiknum.

KR-ingar sluppu fyrir horn á Húsavík:

„Ekki ósanngjarnt þótt Völsungar hefðu unnið" 

KR-ingar voru heppnir að fara með sigur af hólmi á Húsavík í gærkvöldi. Völsungar náðu forystunni strax í upphafi og voru betri aðilinn framan af en í seinni hálfleik tryggði Steinar Ingimundarson KR sæti í 8 liða úrslitum með tveimur mörkum.

„Við vorum lélegir og það hefði ekki verið ósanngjarnt þótt Völsungar hefðu unnið. Þetta var einn erfiðasti leikur sem við höfum spilað í sumar," sagði Atli Eðvaldsson, leikmaður og aðstoðarþjálfari KR, í leikslok.

Strax eftir 45 sekúndur fékk Hilmar Hákonarson sendingu inn í vítateig KR, snéri laglega af sér varnarmann og skoraði með góðu skoti við mikinn fögnuð fjölda áhorfenda á Húsavík.

Völsungar voru þar með komnir á bragðið og gífurleg barátta þeirra sló KR-inga út af laginu. Rétt fyrir hlé voru heimamenn tvívegis nálægt því að bæta við mörkum og í annað skiptið náði Ólafur Gottskálksson að verja boltann í stöng eftir aukaspyrnu Skarphéðins Ívarssonar.

KR-ingar voru mun ákveðnari í seinni hálfleik en Völsungar börðust áfram vel og gáfu þeim ekkert eftir. Síðan fór þreyta að segja til sín hjá liðinu og kafla- skipti urðu í leiknum þegar Steinari Ingimundarsyni var skipt inn á hjá KR fyrir Hilmar Björnsson. Steinar jafnaði leikinn á 30. mínútu eftir góða sókn og skoraði síðan sigurmarkið fimm mínútum síðar eftir frábæra sending Einars Daníelssonar.

KR-ingar sóttu meira í framhaldinu en Völsungar beittu skyndisóknum og voru mjög nálægt því að jafna í leikslok.

„Við gerðum mistök þegar þreytan fór að segja til sín en lékum vel fram að því. Nú vitum við hvað við getum og ætlum að ná upp sömu stemmningu gegn Haukum í deildinni á föstudagskvöldið," sagði Björn Olgeirsson, þjálfari og leikmaður Völsungs.                         HJ/JHB

Hafliði tekur viðtal við Atla Eðvaldsson

Hafliði Jósteinsson íþróttafréttaritari Dags tekur viðtal við Atla Eðvaldsson leikmann og aðstoðarþjálfara KR. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í stærri upplausn.



  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744