Fyrsti heimaleikur ársins í blaki í kvöld

Fyrsti leikur ársins hjá Völsungi í Mizuno-deildinni er í kvöld kl. 19:30, miðvikudaginn 17. janúar.

Fyrsti heimaleikur ársins í blaki í kvöld
Íþróttir - - Lestrar 482

Fyrsti leikur ársins hjá Völsungi í Mizuno-deildinni er í kvöld. kl. 19:30, miðvikudaginn 17. janúar.

Von er á hörkuleik og mikilli baráttu í fyrsta leik eftir jólafrí í deildinni. 

Í liði Völsungs verður nýr leikmaður, hin sænska Camilla Johansson, sem vonandi hjálpar Völsungum í baráttunni um sæti í úrslitakeppni deildarinnar sem er framundan í mars.

HK er sem stendur í fjórða sæti deildarinnar og Völsungur í því fimmta. Þrjú mikilvæg stig í boði og Völsungsstelpur þurfa þinn stuðning. Fyllum nú áhorfendabekkina! Áfram Völsungur!

Frítt inn - frjáls framlög vel þegin. Sjoppan sívinsæla galopin - glóðvolgar pizzusneiðar í boði.

Þeim sem eru veikir heima eða utan stór-Húsavíkursvæðisins geta horft á leikinn í beinni á SportTV.

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744