Framsýn - Viðræður við Erni um áframhaldandi samstarfAlmennt - - Lestrar 173
Í dag hófust viðræður í Reykjavík milli Framsýnar og Flugfélagsins Ernis um áframhaldandi sérkjör félagsmanna á flugleiðinni Húsavík-Reykjavík.
Á heimasíðu Framsýnar segir að samkomulagið hafi byggst á því að Framsýn, í umboði stéttarfélag-anna í Þingeyjarsýslum, hefur verslað ákveðið magn af flugmiðum af flugfélaginu á sérkjörum fyrir félagsmenn stéttarfélaganna.
Á síðustu 12 mánuðum hafa um 5.000 flugmiðar verið seldir í gegnum stéttarfélögin til félagsmanna. Almenn ánægja hefur verið með samstarfið og binda stéttarfélögin vonir við að nýr samningur milli aðila verði undirritaður fyrir jól svo sérkjörin haldist áfram á næsta ári.
Núverandi samkomulag rennur út um áramótin.