Framsýn styrkir knattspyrnudeild VölsungsAlmennt - - Lestrar 205
Framsýn og Íþróttafélagið Völsungur hafa gert með sér samstarfssamning til tveggja ára er varðar stuðning félagsins við knattspyrnudeild Völsungs.
Samningurinn var undirritaður í morgun.
Framsýn hefur í gegnum tíðina stutt vel við bakið á starfssemi Völsungs með stuðningi við flestar deildir félagsins og er nýji samningurinn framlenging á því góða samstarfi.
Ekki þarf að efast um mikilvægi Völsungs sem gegnir mikilvægu hlutverki í æskulýðs- og íþróttastarfi í héraðinu.
Liður í því er að fyrirtæki og félagasamtök styðji vel við bakið á íþróttafélaginu til að auðvelda þeim að ná fram markmiðum sínum í uppbyggjandi starfi.
Við undirskriftina þakkaði Jónas Halldór framkvæmdastjóri Völsungs Framsýn fyrir stuðninginn í gegnum tíðina og sagði mikla ánægju með nýja samstarfssamninginn.