27. feb
Framsókn - Tillaga uppstillingarnefndar borin upp nk. laugardagFréttatilkynning - - Lestrar 319
Næstkomandi laugardag verður haldinn aukaaðalfundur í Framsóknarfélagi Þingeyinga á Húsavík.
Á fundinum verður borin upp tillaga uppstillingarnefndar að framboðslista B – lista Framsóknar og félagshyggjufólks í Norðurþingi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.
Fundurinn er öllum opinn.
Í tilkynningu segir að reglulega vel hafi gengið að koma framboðslistanum saman þannig að hann skipi fjölbreyttan hóp fólks með reynslu og þekkingu á ýmsum sviðum samfélagsins.