FME – Fullnægjandi úrbætur hafa verið gerðar af hálfu Sparisjóðs Suður-Þingeyinga

Fjármálaeftirlitið birti gagnsæistilkynningu á heimasíðu sinni þann 10. febrúar 2016 þar sem gerð var grein fyrir niðurstöðum athugunnar

Fjármálaeftirlitið birti gagnsæistilkynningu á heimasíðu sinni þann 10. febrúar 2016 þar sem gerð var grein fyrir niðurstöðum athugunnar Fjármálaeftirlitsins á útlánum hjá Sparisjóði Suður-Þingeyinga ses.

á 641.is segir að sl. föstudag hafi Fjármálaeftirlitið birt nýja gagnsæistilkynningu á vef sínum sem lesa má hér fyrir neðan.


Vegna misvísandi fjölmiðlaumfjöllunar í kjölfar birtingar framangreindrar gagnsæistilkynningar tekur Fjármálaeftirlitið fram að Sparisjóður Suður-Þingeyinga ses. hefur brugðist við öllum athugasemdum eftirlitsins innan settra tímamarka samkvæmt skýrslu innri endurskoðanda sjóðsins sem barst Fjármálaeftirlitinu í maí 2016 og er það mat eftirlitsins að fullnægjandi úrbætur hafi verið gerðar af hálfu sparisjóðsins.



  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744