Flugeldasalan fer vel af staðAlmennt - - Lestrar 215
Flugeldasala Kiwanisklúbbsins Skjálfanda hófst í gær en hún er til húsa í Nausti, húsi Björgunar-sveitarinnar Garðars, Slysavarnar-deildar kvenna og Rauða krossdeildarinnar á Húsavík.
Að sögn Kiwanismanna hefur salan farið vel af stað en gengið er inn á neðri hæð hússins, bak við Gamla Bauk.
Sigurgeir Aðalgeirsson og Björn Viðar voru á vaktinni í dag þegar ljósmyndara 640.is bar að garði. Eins og sjá má eru Kiwanismenn með grímunotkunina á hreinu auk þess sem aðrar sóttvarnarreglur og fjarlægðarmörk eru virt á sölustaðnum.
Þeir sem ekki hafa áhuga á að kaupa flugelda geta keypt svokallað rótarskot. Með kaupum á því er öflugt og mikilvægt sjálfboðastarf björgunarsveitanna styrkt og um leið staðið við bakið á skógrækt í landinu.
Kiwanisklúbburinn Skjálfandi hélt flugeldasýningu á Norðurgarðinum í kvöld til að minna á söluna.
Flugeldasalan verður opin sem hér segir: