07. ágú
Ferðalöngum vísað frá tjaldsvæðum í blíðunniAlmennt - - Lestrar 189
Blíðviðri er spáð á NA horni landsins um helgina og næstu daga.
Á heimasíðu Norðurþings segir að ferðalangar streymi á svæðið og sveitarfélagið iðar af mannlífi.
Í tilkynningu segir:
Vegna fjöldatakmarkana á tjaldsvæði eru öll tjaldsvæði í sveitarfélagsins full og er verið að vísa fólki frá sem stendur. Það sama gildir um flest önnur tjaldsvæði í nágrenninu eftir því sem heyrst hefur.
Þeim vinsamlegu tilmælum beint til ferðalanga að kanna aðra möguleika en gistingu á tjaldsvæðum þar sem að ekkert er laust á þeim í augnablikinu.
Fjöldamörg gistiheimili og hótel eru á í Norðurþingi og nágrenni sem er tilvalið að nýta sér nú næstu daga.