Falleg glitský á himni í dagAlmennt - - Lestrar 237
Það voru falleg glitský á himni í dag en þau myndast þegar óvenjukalt er í heiðhvolfinu.
Á vef Veðurstofu Íslands segir að glitský séu ákaflega fögur ský sem myndast í heiðhvolfinu, gjarnan í um 15 - 30 km hæð.
Glitský sjást helst um miðjan vetur, um sólarlag eða sólaruppkomu. Litadýrð þeirra er mjög greinileg því þau eru böðuð sólskini, þótt rökkvað sé eða jafnvel aldimmt við jörð.
Litadýrðin þykir minna á þá liti sem sjá má í hvítu lagi sem er innan á sumum skeljum (s.n. ,,perlu-móður''-lag í perluskeljum) og eru þau í ýmsum tungumálum því nefnd perlumóðurský.
Lesa má nánar um glitskýin hér en meðfylgjandi myndir tók ljósmyndari 640.is í dag.
Með því að smella á myndirnar er hægt að fletta þeim og skoða í hærri upplausn.