16. feb
Embætti skólameistara við Framhaldsskólann á Húsavík auglýstAlmennt - - Lestrar 317
Mennta- og menningarmála-ráðuneytið hefur auglýst embætti skólameistara við Framhalds-skólann á Húsavík laust til umsóknar.
Núverandi skólameistari Jóney Jónsdóttir lætur af störfum í sumar.
Á heimasíðu Framsýnar segir að heimaaðilar, þar á meðal stéttarfélagið Framsýn, hafi lagt mikla áherslu á að auglýst yrði eftir skólameistara í ljósi þess á núverandi settur skólameistari vildi losna.
Ráðuneytið hefur greinilega látið segjast og auglýst starfið laust til umsóknar sem er hið besta mál enda skólinn afar mikilvægur í ört stækkandi byggðalagi. (framsyn.is)