14. maí
Ekki bara einn Bjössi Sör heldur tveirAlmennt - - Lestrar 374
Það er að mörgu að hyggja við undirbúning hvalaskoðunarvertíðarinnar og m.a. þurfa bátarnir sitt viðhald. Eftir hádegið í dag þegar ljósmyndari 640.is var á ferðinni í fjörunni var verið að undirbúa sjósetningu á Bjössa Sör en hann hefur verið í slipp að undanförnu.
Meðan beðið var eftir því að sjávarstaðan hækkaði var tíminn nýttur til ýmissa verka. Bjössi Sör, sat í blíðunni við hlið nafna síns og splæsti spotta í stuðpúða. Hann sagði bæði Náttfara og Haukinn eiga eftir að fara í slippinn fyrir sumarið og því nóg að gera.
Meira af Bjössa Sör hér