14. des
Ekkert afl á ofnum PCCAlmennt - - Lestrar 221
Vegna bilunar í spennivirki Landsnets er ekkert afl á ofnum kísilverksmiðju PCC á Bakka þessa stundina.
Í tilkynningu á fésbókarsíðu fyrirtækisins segir að neyðarskorsteinar séu opnir, ofnarnir eru að kólna og því getur fólk orðið vart við lykt.
"Þessi bilun er afleiðing óveðursins sem gekk yfir landið fyrr í vikunni. Það er lögð mikil áhersla á viðgerðir og vonumst við til að þeim ljúki sem allra fyrst. Við munum upplýsa um framvindu mála á næstu dögum". Segir jafnframt í tilkynningunni.