10. júl
Einn umsækjandi er um embætti sóknarprestsAlmennt - - Lestrar 773
Ein umsókn barst um setningu til að þjóna sem sóknarprestur Húsavíkurprestakalls, Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi, frá 1. september 2019 til 31. maí 2020.
í tilkynningu á vef Þjóðkirkjunnar segir að umsóknarfrestur hafi runnið út á miðnætti mánudaginn 1. júlí 2019.
Umsækjandinn er sr. Sólveig Halla Kristjánsdóttir, sem þjónar sem settur sóknarprestur Laufásprestakalls, sama prófastsdæmis.