Davíð Búi og Steindór sigruðu strandblakið

Mærudagsmótið í Strandblaki fór fram í Suðurfjöru í gær, fimmtudag.

Davíð Búi og Steindór sigruðu strandblakið
Íþróttir - - Lestrar 682

Strandblak á Mærudögum.
Strandblak á Mærudögum.

Mærudagsmótið í Strandblaki fór fram í Suðurfjöru í gær, fimmtu-dag. 

Við erum afar glöð með góðan og skemmtilegan dag og vonum að keppendur góðir og áhorfendur hafi skemmt sér jafn vel! Þeim fækkaði reyndar um tíma því við fengum hellidembu, sem stóð þó stutt yfir. 

Sérstakar þakkir færum við Norðlenska sem bauð ásamt blakdeild Völsungs í grillpylsupartý og veitti verðlaun fyrir tvö efstu sæti.

Úrslit mótsins:

1. sæti - Davíð Búi og Steindór

2. sæti - Ágústa Tryggva og Sigmar Tryggva

3. sæti - Trausti Jón og Siggi Ólafs

4. sæti - Helga Björg og Katrín Guðmunds

Keppt var í tólf liðum, sex þeirra komu frá Akureyri, eitt frá Dalvík, tvö úr Reykjavík og þrjú frá Húsavík.

Njótið Mærudaga og takk fyrir þátttökuna - Blakdeild Völsungs.

Hér koma nokkrar myndir frá mótinu og með því að smella á þær er hægt að fletta þeim og skoða í stærri upplausn.

Strandblak á Mærudögum

Strandblak á Mærudögum

Strandblak á Mærudögum

Strandblak á Mærudögum

Strandblak á Mærudögum

Strandblak á Mærudögum



  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744