Davíð Búi og Steindór sigruðu strandblakiðÍþróttir - - Lestrar 682
Mærudagsmótið í Strandblaki fór fram í Suðurfjöru í gær, fimmtu-dag.
Við erum afar glöð með góðan og skemmtilegan dag og vonum að keppendur góðir og áhorfendur hafi skemmt sér jafn vel! Þeim fækkaði reyndar um tíma því við fengum hellidembu, sem stóð þó stutt yfir.
Sérstakar þakkir færum við Norðlenska sem bauð ásamt blakdeild Völsungs í grillpylsupartý og veitti verðlaun fyrir tvö efstu sæti.
Úrslit mótsins:
1. sæti - Davíð Búi og Steindór
2. sæti - Ágústa Tryggva og Sigmar Tryggva
3. sæti - Trausti Jón og Siggi Ólafs
4. sæti - Helga Björg og Katrín Guðmunds
Keppt var í tólf liðum, sex þeirra komu frá Akureyri, eitt frá Dalvík, tvö úr Reykjavík og þrjú frá Húsavík.
Njótið Mærudaga og takk fyrir þátttökuna - Blakdeild Völsungs.
Hér koma nokkrar myndir frá mótinu og með því að smella á þær er hægt að fletta þeim og skoða í stærri upplausn.