Breyting á eignarhaldi Norðursiglingar

Nýlega urðu breytingar á eignarhaldi og stjórn Norðursiglingar.

Breyting á eignarhaldi Norðursiglingar
Fréttatilkynning - - Lestrar 1027

Skonnortan Ópal við borgarísjaka í Scoresbysundi.
Skonnortan Ópal við borgarísjaka í Scoresbysundi.

Nýlega urðu breytingar á eignarhaldi og stjórn Norðursiglingar.

Einn af stofnendum Norðursiglingar, Árni Sigurbjarnarson, seldi hlut sinn í félaginu.

Í tilkynningu segir að aðrir hluthafar Norðursiglingar, ásamt Valdimari Halldórssyni og Friðriki Sigurðssyni, hafi keypt hlut Árna.

Jafnframt fór fram hlutafjáraukning sem allir hluthafar tóku þátt í. Nýr framkvæmdastjóri verður Valdimar Halldórsson.

Nýja stjórn Norðursiglingar skipa:
Friðrik Sigurðsson, formaður
Hrönn Greipsdóttir, varaformaður
Hörður Sigurbjarnarson
Heimir Harðarson
Hildur Árnadóttir


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744