20. jún
Blómaker eiga að draga úr umferðarhraða á LaugarbrekkunniAlmennt - - Lestrar 779
Búið er að setja blómaker í Laugarbrekku til að draga úr umferðarhraða.
Verið er að bregðast við athugasemdum íbúa götunnar sem hafa kvartað undan umferðahraða í götunni.
Framkvæmdin er í samræmi við bókun á síðasta fundi framkvæmdanefndar. (nordurthing.is)
Blómakerin eru hin mesta prýði en tilgangurinn með þeim þarna er að draga úr umferðarhraða en hámakshraði á Laugarbrekkunni er 30 km. á klukkustund.