Birna Björnsdóttir ráðin í starf bókara NorðurþingsAlmennt - - Lestrar 538
Birna Björnsdóttir hefur verið ráðin í starf bókara hjá Norðurþingi en staðan var auglýst þann 13. maí sl.
Í tilkynningu segir að Birna er menntaður kennari frá Kennaraháskóla Íslands og hefur undanfarin ár starfað við kennslu og skólastjórn hjá Norðurþingi.
Á árunum 1992-2006 var Birna skrifstofustjóri hjá Síldarvinnslu-nni (áður SR-mjöl og þar áður Síldarverksmiður ríkisins) og sá þar um launavinnslu, fjárhags- og verkbókhald.
Birna hefur því langa og mikla reynslu af bókhalds- og skrifstofustörfum en starfsstöð hennar verður á Raufarhöfn. Hún mun einnig sinna starfinu að hluta á Húsavík.
Á heimasíðu Norðurþings er Birna boðin velkomin til starfa hjá sveitarfélaginu á ný.